Myndlistardeild

Í myndlistardeild er boðið þriggja ára nám, 180 einingar til B.A. gráðu. Megináhersla er lögð á að þroska frumlega hugsun og þróa ólíkar aðferðir við að koma hugmyndum í viðeigandi form. Unnið er með hugmyndir, úrvinnslu þeirra, framsetningu og gagnrýni. Leitað er samvinnu við starfandi listamenn, stofnanir og fyrirtæki um kennslu og þátttöku í sérhæfðum verkefnum.

Hlutverk myndlistardeildar er að vera leiðandi afl í myndlistarkennslu á háskólastigi og opinn vettvangur fyrir rannsóknir og almenna umræðu. Til þess er ætlast að nemendur og kennarar taki virkan þátt í menningarlífinu og viðhaldi lifandi tengslum við listheiminn.

Námið miðar að því að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð til listsköpunar, auki þekkingu sína og skilning á myndlist og verði hæfari til að takast á við hlutverk sitt og stöðu í samfélaginu sem listamenn.

Deildarforseti: Kristján Steingrímur Jónsson

Prófessorar
Hulda Stefánsdóttir
Katrín Sigurðardóttir
Ólafur Sveinn Gíslason

Fagstjóri í listfræði: Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir

Deildarfulltrúi: Helga Pálína Brynjólfsdóttir

Þjónustufulltrúi: Lísa Guðjónsdóttir